06.12.2006 00:13:26 / asa79

KREISÍNESS IN ÐE KRÍMHÁS!!!!

Sælt veri fólkið!!!

Var búin að blogga hérna fullt og ýtti svo ÓVART á back takkann og allt hvarf út í veður og vind!! :evil: arrrrrrrrggggggggg

Nenni ekki að skrifa það aftur :$ en ætla að skilja eftir mig smá stærðfræðidæmi í tilefni á því að fyrsta prófið mitt er einmitt stærðfræði 8| Ég er nú allavegna búin að koma síðunni í jólabúninginn ;) Kalla það nú bara smá afrek frá minni hálfu þessa dagana!

Áhugaverðari og málefnalegri færsla kemur ekki fyrr en eftir 15 DES því þá er minnz komin í jólafrí :haha::haha:

--Eisí kreisí seisí bæsí--

Ætli þetta sé rétt útkoma??

Maður bara spyr sig??


» 10 hafa sagt sína skoðun

01.11.2006 08:36:49 / asa79

Nútíminn!!

Ætli þetta verði eitthverntíman svona!! 8|

Fékk þetta sent í tölvupósti núna nýlega og ákvað að henda þessu inn svona áður en ég arka í skólann....

Hef nebblega voða lítið að segja....

Tékk it át ;)

Árið 2010 í ríki gagnagrunnanna 

SÍMASTÚLKA: Pizza plúúúús!

VIÐSKIPTAVINUR: Halló, ég ætla að panta pizzu hjá ykkur... 

SÍMASTÚLKA: Sjálfsagt, ég þarf að fá kennitöluna þína. 
VIÐSKIPTAVINUR: Kennitöluna, já hún er 180869-4859.

 SÍMASTÚLKA: Já, Jón Jónsson, heimilisfang Fálkagata 17, símanúmer 5809957. Þú vinnur í herbergi nr. 23 hjá Landsvirkjun og GSM númerið þitt er 879-4138. 
VIÐSKIPTAVINUR: Hvar náðirðu í allar þessar upplýsingar?
 
SÍMASTÚLKA: Við erum tengd við netið.

 VIÐSKIPTAVINUR: (andvarpar) Já, ég ætla að fá tvær lúxuspizzur með kjötáleggi... 
SÍMASTÚLKA: Ég held þú ættir að sleppa því, Jón.
 

VIÐSKIPTAVINUR: Hvað meinarðu? 
SÍMASTÚLKA: Jón, í sjúkraskýrslunni þinni stendur að þú hafir mjög háan blóðþrýsting og allof hátt kólesteról.  Líftryggingafélagið þitt leyfir þér ekki að borða svona óhollan mat.

 VIÐSKIPTAVINUR: Hverju mælirðu þá með? 
SÍMASTÚLKA: Þú ættir að prófa fituskertu sojabaunapizzuna okkar með jógúrtsósunni. Ég er viss um að þér þykir hún góð.

 VIÐSKIPTAVINUR: Hvernig dettur þér í hug að ég mundi vilja eitthvað svoleiðis? 
SÍMASTÚLKA: Nú, þú tókst "Gæðauppskriftir með sojabaunum" á bókasafninu í síðustu viku. Þessvegna stakk ég upp á þessu.

 VIÐSKIPTAVINUR: Ókey, ókey. Sendu mér tvær í fjölskyldustærð.  Hvað kostar þetta svo? 
SÍMASTÚLKA: Það ætti að nægja þér, konunni og börnunum fjórum.  Kostnaðurinn er 4.589 krónur.

 VIÐSKIPTAVINUR: Ég ætlað að borga með kreditkortinu.Númerið er... 
SÍMASTÚLKA: (grípur fram í) Því miður, en þú verður að borga út í hönd.Þú ert kominn yfir á kortinu.

 VIÐSKIPTAVINUR: Ég hleyp þá bara í næsta hraðbanka með debetkortið og tek út pening áður en bílstjórinn ykkur kemur. 
SÍMASTÚLKA: Það gengur ekki heldur. Þú er búinn með yfirdráttinn á tékkareikningnum.

 VIÐSKIPTAVINUR: Jæja, jæja, sendu bara pizzurnar og ég hef peningana tilbúna. Hvað tekur það langan tíma? 
SÍMASTÚLKA: Við erum aðeins í seinni kantinum, gæti verið um 45 mínútur. Ef þér liggur á gætirðu sótt þær um leið og þú nærð í peningana, en það er auðvitað frekar erfitt að flytja pizzur á mótorhjóli...

 VIÐSKIPTAVINUR: Hverning veistu að ég er á mótorhjóli? 
SÍMASTÚLKA: Það stendur hérna að bíllinn hafi verið gerður upptækur vegna vangreiðslna á bílaláninu. En Hondan er fullgreidd svo ég gerði ráð fyrir að þú mundir koma á henni.

 VIÐSKIPTAVINUR: @#%/$@&?#! 
SÍMASTÚLKA: Gættu þín á orðalaginu, Jón. Þú er þegar búinn að fá á þig einn dóm fyrir að blóta í návist lögreglumanns, í júlí 2006.
 

V IÐSKIPTAVINUR: (orðlaus) 
SÍMASTÚLKA: Var það eitthvað fleira?
 

VIÐSKIPTAVINUR: Nei, ekkert. Jú annars, hvað með þessa tvo lítra af kók sem fylgja frítt með pizzunum frá ykkur? 
SÍMASTÚLKA: Því miður, Jón, en í smáa letrinu í auglýsingunni frá okkur stendur skýrum stöfum að við sendum ekki ókeypis gosdrykki til sykursjúkra.

hehehe :)


» 11 hafa sagt sína skoðun

18.10.2006 13:43:40 / asa79

Allt er breytingum háð...

Já eins og þessi síða hérna :)

Var ekki alveg að fíla þennan bleika þannig að ég ákvað að prufa þennan rauða!! enda er ég miklu rauðari heldur en bleikari. ;)

Allt annars gott að frétta héðan. Veturinn að ganga í garð og er búin að taka fram síðu ullarnærfötin, ullarsokkan, húfuna, vettlingana og kuldagallann. Fjöllinn orðin hvít og þó nokkrir morgnar komnir þar sem þarf að skafa af bílrúðunum. Hreyfingarleysið alveg að drepa mig :S Verð greinilega að fara að taka mig i gegn í tímastjórnun og forgangsraða rétt. Það er allavegna það sem mér er ráðlagt að gera og er byrjuð á :D Búin að prenta út tímatöflu og nú er bara að setja inní hana!!!

Hef annars ekkert mikið að segja. Stelpan komin með hita þannig að við erum bara heima þessa stundina. Sú littla að horfa á video og minz annaðhvort í tölvunni eða að skrifa í skriftarbókina!! Maður er nú bara aftur gengin í barndóm og er farin að læra ítalíuskrift aftur og ef ég á að segja alveg eins og er þá er það barasta ekkert auðvelt. Á semsagt að skila skriftarhefti og 3 aukablöðum í lestur og skrift í nóvember. Alveg heilum 15 blaðsíðum! Já það er sko fjör að vera í háskóla :) Svo þegar maður byrjar að skrifa þá getur maður bara ekki hætt ;) En ætla ekki að hafa þetta lengra. Vona bara að stelpan jafni sig fljótlega þar sem við erum búnar að bjóða í bekkjarafmæli á föstudagskvöldið og svo fjölskyldu- og vina afmæli á laugardeginum :) Og svo er mútta mín líka að koma á föstudaginn :haha:

En best að halda áfram að æfa sig í að skrifa, ekki veitir af ;)

Verð að henda inn þessum link hérna:

http://www.kvikmynd.is/indexdetail.asp?id=2519

hehehe.... börn eru bara yndisleg :lol:


» 17 hafa sagt sína skoðun

14.10.2006 12:34:33 / asa79

Þreyta þreyta og leti leti.....

VÁ hvað ég er löt að blogga!! :S

Er svoooo þreytt og mig verkjar hreinlega allstaðar!!!

Reyndar búið að vera KLEKKAÐ að gera í skólanum og hefur maður ekki haft tíma til að sinna einu eða neinu. Var að fara í gegnum gamlar bloggfærslur og marr var nú duglegur að blogga í fyrstu ;) en svo fer þetta bara fækkandi og fækkandi!!

Var að spá í að prófa að breyta útlitinu enn einu sinni og ath hvort það hafi eitthver áhrif á blogg dugnaðinn hjá mér ;)

En annars er bara brjálað rok og læti á akureyri og þessi helgi verður bara tekin í rólegheitum. Unglingurinn minn fór í bæjarferð um helgina og ætla ég bara að eyða helginni í lærdóm og til að knúsa gullmolann minn sem er orðin frekar þreytt á þessum endalausa lærdómi hjá mömmunni 8|

En nóg af væli, ekkert gaman að því....

Ætla að skella mér í göngutúr í rokinu og fara á bókasafnið með skvísuna. Hún er svo rosalega áhugasöm að lesa enda ekkert smá dugleg. Svo er hún að verða 7 ára næstu helgi!! :D Tíminn ekkert smá FLJÓTUR að líða. Bráðum fer maður bara að undirbúa ferminguna ;)

Hendi inn hérna einum góðum sem ég fékk í tölvupósti. Þetta er eitthvað sem mér vantar nauðsinlega í augnablikinu  :klikk:

Draumur konu

Kona ein sat á bar ásamt vinkonum sínum eftir vinnudag, þegar
hrikalega myndarlegur og rosalega sexy ungur maður gekk þar inn.

Hann var svo eftirtektarverður að konan gat með engu móti hætt að
stara á
hann. Ungi maðurinn tók eftir athyglinni sem hann fékk frá konunni,
gekk
beint til hennar og sagði.

Ég skal gera hvað sem, "HVAÐ SEM ER" og hversu afbrigðilegt sem það
er fyrir
2000 kr.með einu skilyrði.

Orðlaus af undrun spurði konan hvað þetta skilyrði væri.

Ungi maðurinn svaraði: Þú verður að segja mér hvað þú villt að ég
geri
í aðeins 3 orðum.

Konan hugsaði tilboð hans um stund, byrjaði svo að telja peningana
upp úr
buddunni sinni og rétti unga manninum.

Hún horfði djúpt í augu hans og hægt og rólega svaraði hún: ........














ÞRÍFÐU HÚSIÐ MITT!!!!!!!!!!!!!!

Ásan kveður.....


» 7 hafa sagt sína skoðun

29.09.2006 11:30:45 / asa79

Í þágu vísindanna..

Já það er gott að vera í háskóla. 8)

Gott að geta uppgövað nýja hluti og tileinkað sér hin ýmsu fræði...

Tala nú ekki um að fara í VÍSINDAFERÐIR á hina ýmsu staði....

Tilgangurinn er ábyggilega sá að maður verði VÍSINDALEGRI í alla staði...

VÍSINDAFERÐ hjá mér í dag kl 18:00...

Ferðinni er heitið í hinn VÍSINDALEGA landsbanka þar sem aðaláherslan er lögð á VÍSINDALEGAR snittur, VÍSINDARLEG drykkjarföng (sem innihalda meira en yfir 2.5% vínanda :D ) ásamt VÍSINDARLEGRI uppgötvun á peninganotkun ;)

Heyr heyr, húrra og SKÁL fyrir VÍSINDUNUM og öllu sem því tilheyrir :haha: :klikk:

Spurning dagsins: (ekki endilega tengt vísindum ;) ) Ætli grasið sé grænna hinumegin?

maður bara spyr sig??


» 8 hafa sagt sína skoðun

04.09.2006 13:17:56 / asa79

Úppúsíí.. aftur komin mánudagur.....

Huhumm.. já er í skólanum og þetta er náttulega ekki það sem maður á að vera að gera þegar maður er í tíma!!! En ákvað að skella hérna nokkrum línum inn J málið er það að það er komin ný vika og ég er að hefja nýtt líf!! Já sko mín er ekki búin að hitta gísla sinn í laaaangan tima þannig að nú verður tekið á því, svo er það skólinn sem er að byrja á fullu, og svo djammið sem verður í undanhaldi á næstunni og já Minnz er að verða unglingamamma þannig að nú verða 2 unglingar á heimilinu ;) ;)

Jæja nú verð ég að fara að fylgjast með því sem kennarinn er að segja svo ég verði ekki hýdd eða lamin á puttana með priki því hann er alveg þesslegur þar sem hann er útrskrifaður og starfandi sálfræðingur.

Tjao tjao....

Ákvað að láta þetta fylgja með þar sem ásan er virkilega farin að taka á því eftir smá sumarfrí og heldur mikla öldrykkju, fann þetta á einhverri vefsíðu og finnst þetta algjör snelld!

12 sporakerfið við súkkulaðifíkn

1. Ég mun viðurkenna vanmátt minn gagnvart súkkulaði

2. Ég mun taka Nigellu úr Guðatölu og líta á hana sem manneskju

3. Ég mun taka burt allar kökubækur úr svefnherberginu

4. Ég mun aðeins lesa kökublað Gestgjafans einu sinni á dag

5. Ég mun hætta að baka við öll tækifæri, þ.m.t. á þjóðhátíðardag Normanna, Svía, Belga, Dana osfrv.

6. Ég mun viðurkenna að það er ekki verið að tala beint til mín þegar birtist súkkulaðiauglýsing í sjónvarpinu.

7. Ég mun hætta að enda mínar bænir með “…að eilífu, Snickers.”

8. Ég mun ekki skíra börnin mín Lindu, Nóa eða Mónu.

9. Ég mun aldrei framar syngja “Þú ert súkkulaði, súkkulaði, súkkulaði hæna”

10. Ég mun viðurkenna að Sælgætisland er ekki til og Glámur og Skrámur séu óæskilegur félagsskapur.

11. Ég mun viðurkenna að súkkulaði er ekki eitt af frumefnum og við getum lifað án þess.

12. Ég mun flytja öðrum súkkulaði fíklum þennan boðskap án þess að slefa…

 

 




» 13 hafa sagt sína skoðun

28.08.2006 22:11:14 / asa79

MÁNUDAGUR...

Mánudagur til mæðu og þynnku!!!

Já minnz er orðin frekar slöpp í þessu :S Má ekki fá sér smá í littlu tánna og það tekur alveg 2 daga að jafna sig!!! Asnó.......

En já púddan er komin aftur og það virðis hafa orðið smá miskilningur hérna því ritarinn gleymdi að skrifa í sumar þegar ég fór í sumarfrí!! ;) enda er ég búin að reka hann og auglýsi hér með eftir nýjum!

 

En Ólafsdóttir er komin aftur og er þetta það eina sem ég hef að segja á þessum tímapunkti:

 

Ég lifi í voninni

 að ég geispi ekki golunni

deyji úr leiðindum

eða gangi hreint af göflunum.

Ég þoli ekki mánudag,

en skána strax við þriðjudag,

í banastuði fimmtudag,

föstudag og laugardag.

Ég elska stuð og helgarfrí

svolítið sukk og svínarí

vil svo eiga sæla sunnudag

og slappa af.

Ég vil lifa lífinu

upplifa slatta af hamingju

nenni ekki að hanga hér

ég vil ferðast og skemmta mér. :haha:

 

take care...........

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

14.07.2006 16:59:50 / asa79

Ferðalög og mennigarlegheit

 

Já mínz bara búin að vera tínd um tíma. Það er svona að vera að gera ekki neitt því þá er maður bara útum allt 8|

Fór í þórsmörk fyrstu helgina í júlí og það var nú bara arrrrgandi snilld og eitt það skemmtilegasta ferðalag sem ég hef farið í :haha: Fór með Ástu, Steindóri og Kidda og vorum við svo flott á því að vera í tjaldvagni sem var líka svona EKKI vatnsheldur en það var nú bara ævintýri. Ákváðum við fjögur því að stofna ferðaklúbbinn LEKANDA sem er úber skemmtilegur og fyndinn klúbbur :lol: og státar af skemmtilegasta fólki á landinu og ég tala nú ekki um flottustu hlaðborðum sem fyrir finnast í víðri veröld, hvaða tíma dags sem er 8) Við vorum nú ekki bara fjögur heldur hittum við Öldu vinkonu sem var með VÍN hópnum sínum og vorum við því asskoti mörg í strákagili enda var það skemmtilegasti staðurinn til að vera á með skemmtilegasta fólkinu. :D SEMSAGT ÞAÐ VAR BARA ALLT SKEMMTILEGT VIÐ ÞESSA FERÐ.

En jæja svo var nú bara komið heim á Akureyrish á fimmtudeginum og þá var byrjað esso-mótið í fótbolta og var bara stanslaus gestagangur fram á sunnudag. Sem var bara fínt. Mínz var bara í því að hella uppá kaffi, setja bakkelsi á borð og vaska upp og endaði svo í “útileigu” á hverju kvöldi en svaf samt heima!! Það var nú bara frekar kósý.

Mamma og Gunna komu svo á mánudeginum og erum við SD búnar að þeytast með þær útum allt í nágrenni við Akureyrish að skoða allskonar áhugaverða staði og fara á söfn og þvílíkt menningarlegar á því. Fórum meira að segja útí Hrísey í gær í bongóblíðu sem er mjög spennandi og áhugverður staður. Ég mæli með honum ;) hver veit nema maður endi bara sem kennari í Hrísey og kaupi sér littla tryllu og verði svo bara á veiðum (fiskiveiðum þá) á sumrin!! Þá á maður alltaf nóg af þorski, ýsu og jafnvel marglittum í matinn á veturnar:!::!:  Já yrði það ekki ekta ég?? 8)

En nóg af blaðri í bili.....

Þarf að fara að sýna kellunum hvað norðlensk - menning er ;)

 

 

 

p.s. var að búa mér til svona myndasíðu sem er hérna til hliðar og þar eru myndir frá Lekanda ferðinni :) 

 



 Já birkitrjáeldaða kjötsúpan á heimagerðu grillinu var vinsæl í mörkinni góðu ;)

Kveðja BARBARABARARAARABARABBABARA!!!!

 

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

26.06.2006 22:48:51 / asa79

Já ég hef ekkert að gera!! ;)

Verð að henda þessu inn hérna. Hef ekkert annað að gera á daginn heldur en að hanga i tölvunni!! gæti svosem gert alveg heilan helling hérna heima hjá mér eins og að hengja upp myndir, taka til i geimslunni og svo framvegis ennn.... á morgun segir sá lati :klikk:

Hélt að ég myndi deyja úr hlátri þegar ég horfði á þetta :lol: Japanir eru greinilega húmoristar. Svona er maður bara gerður!! hlær að óförum annara :klikk:

 http://www.kvikmynd.is/indexdetail.asp?id=2299

jæja best að horfa á CSI á meðan ég bíð eftir að þvottavélin klári að þrífa æfingafötin mín en það eru nákvæmlega 20 mínútur í það ;)


» 10 hafa sagt sína skoðun

25.06.2006 18:28:02 / asa79

Fyrsta útlileiga sumarsins ;)

Kvöldið er okkar og vor um Vaglaskóg.

Við skulum tjalda í grænum berjamó.

Leiddu mig vinur í lundinn frá í gær,

Lindin þar niðar og birkihríslan grær

 

 



Leikur í ljósum, lokkum og angandi rósum.

Leikur í ljósum, lokkum hinn vaggandi blær!

 

 



Já svona byrjar víst sú vísa um Vaglaskóginn. En þaðan var skonsan einmitt að koma. Fór í fyrstu útileigu sumarsins á föstudaginn og kom heim áðan. Það var nú bara hreinasta snilld og ég mæli sko með Vaglaskógi ;) það er yndislegur staður. Við fórum með Kristínu, Benedikt, Siggu, Óliver, Aroni og Kristin og komum á föstudagskveldið og það var alveg hið fínasta veður nema svoldið kalt um nóttina enda fyrsta útilegan þetta sumarið og mjög langt síðan maður fór seinast. En í gær var veðrið bara hreinasta snilld. Um 20 stiga hiti og glampandi sól enda grillaðist maður gjörsamlega og svo gat sólin ekki ákveðið sig í dag og var svona að koma og fara en samt sem áður 17 stiga hiti EKKI Í SÓL. Þannig að fyrsta útleigan byrjaði vel og þetta er sko ekki sú síðasta skal ég segja ykkur :D En nú er maður komin “home sweet home” búin að ganga frá öllu, viðra sængurnar, henda í vél og búin að henda sér í sturtu og ég er gjörsamlega búin á því ;) Enda er ég komin með sængina og koddann inní sófa og er að horfa á littla kjúllann með dögginni minni ;) og ætla bara að flatmaga hér þangað til að augnlokinn geta ekki meir þennan daginn!!

 

 



Ekki meir í bili......

Þangaði til næst......

 

 



..........SKONSAN KVEÐUR..........

 

 




» 2 hafa sagt sína skoðun

22.06.2006 04:00:46 / asa79

Minning....

Já þið verðið að afsaka blogleysið síðustu vikur en það er búið að vera svooo mikið að gera hjá skonsunni og þá aðalega í samkvæmislífinu ;)

 

En með þessu bloggi langar mig aðeins að minnast eins yndislegasta manns sem ég þekkti!.. Pabba míns.

Fyrir akkúrat 9 árum á þessum degi dó hann pabbi minn, Ólafur Valgeir Einarsson. Og það er svo skrýtiði eitthvernveginn að alltaf á þessum degi ár hvert þá líður mér eins og það hafi gerst í gær. Þó svo að ég muni þetta í svona einhverskonar gloppum þá man ég alltaf sömu gloppurnar. Ég fæ líka alltaf sömu vondu tilfinninguna um allan líkaman sem ég get bara ekki lýst nema hún nær frá höfði og niður í tær, sömu tilfinninguna og ég fékk þegar mér var sagt að hann væri dáinn og sömu tilfinnunguna þegar mér var sagt þegar að Stefanía dó. Ég kalla það vonda tilfinningu því það er að mínu mati versta tilfinning sem sem maður upplifir þegar maður missir einhvern sem maður elskar. :cry:

Pabbi minn var yndislegur maður og er ég mjög þakklát fyrir að hafa átt hann sem pabba. Allar sögur sem maður hefur heyrt um hann í gegnum tíðina eru sögur sem maður yfirleitt hlær af og sýna manni hversu góður, vinsæll og vel liðinn maður hann var. Þessar sögur og minningin sem maður á sjálfur hjálpa manni svo að lifa með því að hann sé farinn. Samt sem áður er söknuðurinn alltaf jafn sár þó svo að það séu komin 9 ár síðan að hann kvaddi þennan heim. Maður hugsar alltaf um það hvernig lífið hefði verið í dag ef hann væri á lífi. Þó að ég eigi bestu mömmu í öllum heiminum og besta fósturpabba sem hægt sé að hugsa sér þá vantar alltaf eitthvað. Það vantar að geta talað við hinn helminginn af myndinni!! Skiljiði? (Æi þið haldið örugglega að ég sé að tapa mér í væmninni núna en það verður bara að hafa það J verð bara að koma þessu frá mér). Það vantar að geta rætt við hann um lífiði og tilveruna. Og svo er Sóley sem er orðin svooo stór og skýr og spyr rosalega mikið um hann. Það var bara seinast í gær sem hún var að tala um hann og fór svo að gráta og sagði : mamma mér finnst þetta ósanngjarnt! Ég fékk aldrei að hitta hann og hann fékk aldrei að hitta mig og hann er afi minn!! Hún spáir rosalega mikið í þessum hlutum og talar rosalega mikið um hann og Stefaníu frænku sem hún þekkti sem er bara gott mál enda sitjum við oft saman að skoða myndir af þeim tveimur.

En lífið er lærdómur og allir verða að yfirstíga eitthverja erfiðleika í lífinu nema það er bara misjafnt í hverju það felst og hvernig það er. Það að missa ástvin er ömurlegt og þessvegna gott fólk þarf maður aðeins að spá í hvernig maður kemur fram við náungann!!! Alveg sama hvort það sé barnið þitt, foreldrar þínir, fjölskyldan þín, vinir þínir, þeir sem standa þér næst og jafnvel ókunnuga manneskjan sem þú rekst á út á götu. Því að sem þú gerir öðrum getur haft áhrif á allt þeirra líf sama hvort það sé gott eða slæmt. Og þú veist aldrei, þá meina ég ALDREI hvað morgundagurinn ber í skauti sér. Og ég get ekki trúað því að það sé hægt að lifa með það að hafa gert einhverri manneskju eitthvað illt eða komið illa fram við einhvern og vera hamingjusamur/söm með það!! Er það ekki þannig að manni langar að líða vel og vera hamingjusamur?? Maður fær bara eitt líf ( í einu að minnsta kosti) ;) og er ekki um að gera að nota það vel og hugsa vel um þá sem eru í kringum sig??

Verið góð við hvort annað og ekki spara knúsin og kossana fyrir þá sem ykkur þykur vænt um :D

Ásan er hætt að prédika og ætlar að láta fylgja hérna nokkrar myndir síðan í gamla daga og smá bút úr lagi sem er fallegt :)

 

When I think of angel - I think of you.
With your flaming red hair – and the things that you do
I heard you had left, no it could´nt be true
When I think of angel - I think of you

Goodspeed to you angel wherever you go
Althought you have left - I want you to know
My heart´s full of sorrow, I won´t let it show
I´ll see you again when it´s my time to go

Kristján Kristjánsson (

KK)

                         já hérna er maður bara frekar ný með kallinum :D

Svona var maður nú dætur einu sinni ;)

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

29.05.2006 23:37:23 / asa79

Blehhhhh......

Tími kominn á smá uppdate hjá púddunni 8|

Búin að vera í höfuðborginni og hafa það bara andskoti nice og lenda í ýmisskonar  ævintýrum eins og gengur og gerist, góðum og slæmum!!! (samt fleiri góðum sko):haha:

Fór í heljarinnar göngutúr með massamass og massarass :D (var það ekki annarss svona?) Tókum Elliðavatnshringin!! ekkert smá dullegar :haha:

Og engin  smá vellíðan á eftir. Þetta var æði stelpur, lovejú ;)

Nú er maður bara búin á því og komin í bælið og er að vafra á netinu!!

Svo er ferðinni heitið til Akureyrish í fyrramálið.....

Fann þetta myndband á netinu og barasta verð að setja það hér inn!

Sko ef konur eru klaufar hvað eru þá karlmenn??? takið eftir kallinum með ryksuguna eða hvað sem þetta er!! ég hélt að ég myndi tapa mér úr hlátri þegar ég var að horfa á þetta :lol: :lol: :lol:

http://www.kvikmynd.is/indexdetail.asp?id=2228

*PÚDDAN KVEÐUR AÐ SINNI*


» 15 hafa sagt sína skoðun

20.05.2006 22:12:58 / asa79

Gó FINNLAND :D

Jæksssss.........

Þarna kom´ettta :haha:

Finnland var æði :haha:

NÚ VERÐUR TEKIÐ Á ÞVÍ :klikk:

þAð VeRðUr FJÖR á AkuReyRIsh í kvöLD

http://www.kvikmynd.is/indexdetail.asp?id=2083


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.05.2006 14:49:47 / asa79

Eurovision....

TIL HAMINGJU ÍSLAND

þá er það Evróvisjón í kveld!! :D 

 Spennan á heimilinu orðin alveg rosaleg, þá aðalega hjá ungfrúnni :haha:

Ætli kjellingin nái að komast i úrslit eða ætli hún lendi á botninum???

 Hvað haldið þið pjöllur og púddur???

Já þegar ég segi pjöllur og púddur þá á ég náttulega við kvenmenn!! Því það eru greinilega engir karlmenn sem skoða síðuna mína!! Í skoðanakönnuninni sem var uppi var 1 karlmaður sem tók þátt og örugglega bróðir minn sem kvittar ekki einu sinni ( þetta er til ykkar bræður mínir en þið eruð fjórir og ég veit þið skoðið síðuna hjá systu og það Á AÐ KVITTA :klikk: ) hehe

En ekki það að það fari eitthvað í taugarnar á mér að það skuli engin karlmaður kvitta á síðuna hjá mér, það eiga bara allir að kvitta ;) bara eins og ég kvitta “ALLTAF” þegar ég skoða síður hjá öðrum ;)

 

En nóg af vröfli!! Við ætlum á þessu heimili að syngja og dansa og hrópa og öskra þegar Silvían stígur á sviðið í kvöld ;) Allir velkomnir í heimsókn sem vilja og horfa með okkur, ætlum að hafa svona lató nammi og eitthvað hollt og gott að drekka með!! :) Enda skonsan að fara í vigtun á morgun og í þolpróf og verður að vera með allar flugurnar 5 í hausnum sprækar í fyrramálið 8)

Það verður þá bara tekið betur á þvi á laugardaginn í staðinn (hehe) :lol:

 

 

ÁFRAM SILVÍA NÓTT

úújeeee

blehhhh......

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.05.2006 23:05:37 / asa79

Öss össs öss....... þynnka aldarinnar!!

Úfffff.......

Fór að djamma á laugardagskvöldið og er ennþá þunn á mánudegi :S

Enda var líka vel tekið á því ;) förum samt ekkert nánar út í það :klikk:

 

Prófin búin og pjásunni gekk bara alveg ágætlega nema í seinasta prófinu sem var saga!! En það kemur bara í ljós. Fór svo í dag í klippingu og litun og er ALVEG ennþá að venjast því en ætla að henda inn einni mynd af skonsunni og nýja dúinu ;)

Nú tekur bara sumarið og sælan við og ætlar skonsan að hafa það gott í sumar og reyna að fara í fullt fullt af ferðalögum. Ásta og Steindór búin að redda hórukassa eða öðru orði rúgbrauði og draumurinn er að safna saman fullt af liði og fara hringinn :D og tjalda og grilla og svoleiðis skemmtilegheit..........  sko hafa þetta alvöru “KEPPNIS” útilegu en það er víst nýjasta orðið á götunni ;)

Svo er Eva Lind og Ágúst að fara heim á morgun eða þ.e í Hornafjörðinn og verða þar í allt sumar. :cry: Hennar verður sárt saknað og vil ég bara þakka henni fyrir veturinn sem var að líða J Allar stundirnar í skólanum og á djamminu og sérstaklega helginni sem var að líða :haha:

Kem pottþétt að heimsækja þig í sumar esskan :*

 

Ennn jæja skonsan ætlar að henda sér uppí sófa og hafa það kósý að horfa á imbann áður en hún fer að sofa ;)

 

Hér kemur svo myndin af minz!!!

 

 

 

<span lang=

 

 

 

 



 

 

Hvað finnst ykkur annars?? sést kannski ekki svo mikið en......

 

Ásan kveður

 

 

 

SYONARA ...

:haha::haha::haha:

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Klukkan